Hakk og spagettí

Spaghetti bolognese

  • ca 500 gr nautahakk (einn bakki)
  • 1 laukur
  • 1 rauð paprika
  • 1 krukka Dolmio pastasósa með extra hvítlauk (fæst m.a. í Bónus og Nettó)
  • 1 dós sýrður rjómi (ef ég á venjulegan rjóma þá nota ég hálfa dós af sýrðum rjóma og rjóma á móti)
  • 1/2 – 1 grænmetisteningur
  • ca 2-3 msk fljótandi hunang
  • smá sinnep (má sleppa)
  • chili explosion krydd frá Santa Maria
  • salt, pipar og paprikukrydd

Steikið hakkið á pönnu og þegar það byrjar að brúnast er lauknum bætt á pönnuna. Steikið áfram þar til laukurinn verður mjúkur og ef ég á papriku þá sker ég hana smátt og bæti á pönnuna í lokin. Kryddið aðeins með Kød og grill kryddi eða Lawrey´s seasoned salt og piprið. Bætið Dolmio pastasósunni á pönnuna ásamt sýrða rjómanum og rjómanum (ef þið eigið hann), 1/2 grænmetisteningi, hunangi, smá sinnepi og vel af chilli explosion kryddinu (ekki vera hrædd við það).  Leyfið að sjóða um stund og smakkið til, bætið jafnvel meiri krafti út í eða meira af chilli explosion kryddinu. Mér þykir líka gott að krydda aðeins með paprikukryddi. Ef sósan er of sterk bæti ég meiri rjóma eða sýrðum rjóma út í.

http://ljufmeti.com/2012/08/08/spaghetti-bolognese/

Snickerskaka

Uppskrift:

  • 4 egg
  • 4,5 dl sykur
  • 2 tsk vanillusykur
  • 8 msk kakó
  • 3 dl hveiti
  • 200 g smjör, brætt
  • 100 g Pipp súkkulaði með karamellu (má sleppa)

Krem:

  • 2 dl salthnetur
  • 200 g rjómasúkkulaði

Ofninn hitaður í 175 gráður, undir- og yfirhita, og ca 26 cm smelluform smurt að innan. Smjörið brætt og látið kólna dálítið. Egg og sykur þeytt saman. Því næst er vanillusykri, kakói, bræddu smjöri og hveiti hrært út í. Deiginu er hellt í bökunarformið og pippmolunum þrýst ofan í deigið hér og þar. Því næst er kakan bökuð í miðjum ofni við 175 gráður (undir- og yfirhita) í 30 til 40 mínútur, kakan á að vera blaut í miðjunni.

Á meðan er rjómasúkkulaðið brætt yfir vatnsbaði og hnetunum bætt út í þegar súkkulaðið hefur bráðnað. Þegar kakan er komin úr ofninum og hefur kólnað dálítið er kreminu hellt yfir kökuna og hún kæld í minnst tvo tíma áður en hún er borin fram með þeyttum rjóma.

http://eldhussogur.com/2013/02/18/snickerskaka/